
Félagi lífeindafræðinga hefur verið bent á að svikapóstar séu sendir til félagsfólks okkar sem virðast koma frá formanni Félags lífeindafræðinga, Evu Hauksdóttur. Póstarnir sem við höfum fengið upplýsingar um hafa allir borið heitið „Fljótleg aðstoð“ og í þeim er óskað eftir aðstoð frá viðtakendum.
Við viljum biðja ykkur um að vera vakandi fyrir slíkum póstum. Ef þið fáið póst þar sem formaður félagsins óskar eftir aðstoð frá ykkur, er fljótleg leið til að kanna hvort um svik sé að ræða að skoða netfangið sem pósturinn er sendur úr. Félag lífeindafræðinga notar netfangið fl[hjá]lifeindafraedingur.is og formaður félagsins netfangið eva[hjá]lifeindafraedingur.is. Svikapóstarnir sem við höfum fengið upplýsingar um hafa komið frá fl.bhm[hjá]outlook.com. Einnig má kanna lögmæti tölvupósta með því að hafa samband við félagið og spyrja hvort tiltekinn póstur hafi verið sendur frá félaginu eða formanni.
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða áhyggjur vegna samskipta sem virðast koma frá formanni Félags lífeindafræðinga, hikið ekki við að hafa samband við félagið í gegnum tölvupóst á [email protected] eða í síma 595-5186 til að fá nánari upplýsingar.