Skip to main content
Fréttir

Útskriftarfögnuður og verðlaunaafhending

By júlí 16, 2026No Comments

Fimmtudaginn 18. júní fór fram útskriftarfögnuður Félags lífeindafræðinga, þar sem félagið fagnaði útskriftarnemum í lífeindafræði frá Háskóla Íslands. Þar voru einnig afhent hvatningarverðlaun Félags lífeindafræðinga. Tilgangur verðlaunanna er að veita þeim nemendum í grunnnámi í lífeindafræði viðurkenningu og hvatningu sem hafa skarað fram úr á einhvern máta í náminu og þannig styrkja tengsl Félags lífeindafræðinga við námsbraut í lífeindafræði við Háskóla Íslands.

Að þessu sinni hlaut Sandra Dögg Kristjánsdóttir fyrstu verðlaun, 400.000 kr., en hún var með hæstu einkunn á B.Sc.-prófi. Olga Mansour hlaut önnur verðlaun, 300.000 kr., og Katrín Erla Kjartansdóttir hlaut þriðju verðlaun, 250.000 kr.

Á myndinni má sjá verðlaunahafa hvatningarverðlauna Félags lífeindafræðinga að þessu sinni, f.v. Katrín Erla, Olga og Sandra Dögg. Við óskum þeim, sem og öðrum lífeindafræðinemum sem útskrifuðust úr námi sínu, hjartanlega til hamingju með árangurinn og velfarnaðar í framtíðinni.