Skip to main content
Fréttir

Haustfundur Félags lífeindafræðinga

By september 25, 2026No Comments

Haustfundur Félags lífeindafræðinga verður haldinn föstudaginn 9. október í Borgartúni 27, 2. hæð, kl.17:00 – húsið opnar kl.16:30.
Fundurinn verður einnig rafrænn á Teams og verður hlekkur á fundinn sendur út samdægurs.

 

Dagskrá fundar

  1. Setning fundar
  2. Þakkir til fyrrum stjórnarmeðlima
  3. Kjör samninganefndar Félags lífeindafræðinga

Í 12. gr. laga Félags lífeindafræðinga segir:

„Í hverri samninganefnd skulu eiga sæti formaður FL
og tveir til sex fulltrúar félagsfólks.“

Eftirfarandi félagsmenn hafa þegar gefið kost á sér til áframhaldandi starfa í samninganefnd:

Arna Óttarsdóttir, Freyja Valsdóttir, Gerður Halla Gísladóttir og Inga Stella Pétursdóttir.

Hér með er óskað eftir framboðum eða tilnefningum í samninganefnd FL. Þau sem hafa áhuga á kjaramálum eru hvött til að bjóða sig fram. Framboð skulu send á [email protected].

  1. Kynning
    1. Uppfærsla á heimasíðu Félags lífeindafræðinga
    2. Sjóðir FL og BHM
    3. IFBLS2026
    4. Næstu viðburðir
  2. Önnur mál

 

Ef félagsfólk FL hefur mál sem það vill taka upp undir liðnum önnur mál er hægt að senda erindi á [email protected] eða óska eftir að fá orðið þegar komið er að þeim dagskrárlið.

Eftir fundinn býður Félag lífeindafræðinga upp á veitingar og pubquiz.

Matur fyrir félagsfólk utan fundarstaðar: Félagið býður lífeindafræðingum á landsbyggðinni sem vilja koma saman og fylgjast með haustfundinum að panta sér mat, og sama gildir um félagsfólk á höfuðborgarsvæðinu sem er við störf á fundartíma. Hafa skal samband við Jóhönnu Kristjánsdóttur, gjaldkera félagsins, í netfanginu [email protected].

Við hvetjum allt félagsfólk til að mæta og taka virkan þátt í starfi félagsins.