Skip to main content
Fréttir

Sérfræðingar í vísindalegu sérfræðinganeti IFBLS

By september 8, 2026No Comments

Í ágúst voru lífeindafræðingarnir Helga Sigrún Sigurjónsdóttir og Virginie Sandra Letertre samþykktar inn í vísindalegt sérfræðinganet Alþjóðasamtaka lífeindafræðinga, IFBLS. Starfstímabil þeirra lýkur í lok desember 2029.

Helga Sigrún er fulltrúi nándarrannsókna (e. point-of-care testing, POCT) og Virginie er fulltrúi forgreiningarferilsins (e. pre-analytics). 

Það er Félagi lífeindafræðinga mikill heiður að eiga félagsfólk í vísindalegu sérfræðinganeti IFBLS. Félagið óskar Helgu Sigrúnu og Virginie innilega til hamingju með viðurkenninguna og velfarnaðar í mikilvægu alþjóðlegu starfi.

(myndin sem fylgir fréttinni sýnir Helgu Sigrúni (vinstra megin) og Virginie (hægra megin))