Skip to main content
Fréttir

Eflum tengslin – félagsskemmtun 28. ágúst

By ágúst 7, 2026No Comments

Félag lífeindafræðinga býður félagsfólki sínu á skemmtilega og fræðandi samverustund föstudaginn 28. ágúst kl. 17:30, þegar Stefán Pálsson kemur til okkar með fræðsluerindi um bjór. Bjórsmökkun verður í boði samhliða fræðslunni.

Viðburðurinn fer fram í Borgartúni 27, 2. hæð, og húsið opnar kl. 17:00. Fyrirlesturinn tekur um 70–80 mínútur. Í boði verða bæði áfengir og óáfengir drykkir til að smakka, auk veitinga.

Þau sem ætla að mæta eru vinsamlegast beðin um að skrá sig fyrir 26. ágúst. Upplýsingar um skráningu voru sendar í tölvupósti til félagsfólks 4. ágúst. Forföll má tilkynna með tölvupósti til [email protected].

Félagsfólk utan höfuðborgarsvæðisins er sérstaklega hvatt til að hittast og taka þátt saman rafrænt. Hægt er að hafa samband við félagið á [email protected] vegna kaupa á drykkjum. Hlekkur fyrir rafræna þátttöku verður sendur út samdægurs.

Við hvetjum félagsfólk til að nýta tækifærið, koma saman í Borgartúni eða taka þátt rafrænt og eiga góða stund með kollegum.