Skip to main content
Fréttir

Frá námi til starfs í lífeindafræði – fræðslufundur 19. nóvember

By nóvember 17, 2026No Comments

Félag lífeindafræðinga heldur fræðslufund fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16:15 í Borgartúni 27, 2. hæð.

Katrín Birna Pétursdóttir flytur erindið Frá námi til starfs í lífeindafræði, þar sem fjallað verður um hvernig nám í lífeindafræði undirbýr nemendur fyrir fjölbreytt störf.

Í erindinu kynnir Katrín Birna verkefni sem unnið var í kennslufræði háskóla við Háskóla Íslands. Þar voru könnuð viðhorf fyrrverandi nemenda og stjórnenda á rannsóknarstofum til gagnsemi náms í lífeindafræði, með sérstakri áherslu á blóðmeinafræði.

Rannsóknin byggði á sex rýnihópaviðtölum við nemendur, starfandi lífeindafræðinga og stjórnendur á rannsóknarstofum innan Landspítala, í einkageira og í grunnrannsóknum. Erindið varpar ljósi á tengsl náms og starfs og mikilvægi samráðs við nemendur og tengsla við atvinnumarkaðinn við þróun námsins.

Katrín Birna er lífeindafræðingur á blóðmeinafræðideild Landspítala og aðjúnkt við námsbraut í lífeindafræði Háskóla Íslands.

Félagsfólk er hvatt til að mæta á fræðslufundinn. Kaffiveitingar verða í boði.