
Á nýafstaðinni ráðstefnu IFBLS, sem haldin var í Chiba í Japan 23.-27. september, var Martha Á. Hjálmarsdóttir sæmd heiðursnafnbótinni Fellow of IFBLS fyrir störf sín í þágu samtakanna og lífeindafræðinnar.
Heiðursnafnbótin Fellow of IFBLS er veitt einstaklingum sem hafa lagt verulega af mörkum til IFBLS og lífeindafræðinnar, meðal annars sem lífeindafræðingar, kennarar, klínískir sérfræðingar, rannsakendur eða stjórnendur. Viðkomandi þarf jafnframt að tilheyra félagi eða samtökum sem eiga aðild að IFBLS.
Martha á að baki langan og farsælan feril í þágu lífeindafræðinnar, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hún lauk námi í lífeindafræði árið 1973 og hóf starfsferil sinn á sýklafræðideild Landspítalans. Frá árinu 1982 tók hún virkan þátt í uppbyggingu og kennslu lífeindafræðináms á Íslandi og varð síðar fyrsti deildarstjóri lífeindafræðideildar Háskóla Íslands þegar námið var flutt þangað árið 2005. Martha var formaður Félags lífeindafræðinga á árunum 1988–1993, sat í stjórn IFBLS frá 1994 til 2004 og gegndi embætti forseta samtakanna á árunum 2000–2002. Hún er fyrsti íslenski lífeindafræðingurinn sem lauk doktorsprófi og jafnframt sá eini sem hefur gegnt embætti forseta IFBLS. Árið 2016 hlaut hún IFBLS Past President Award fyrir umfangsmikil og farsæl störf sín í þágu samtakanna.
Félag lífeindafræðinga óskar Mörthu innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu.