Skip to main content
Fréttir

Upplýsingar frá aðalfundi FL

By apríl 24, 2026No Comments

Hér koma helstu upplýsingar í kjölfar aðalfundar Félags lífeindafræðinga (FL) sem haldinn var síðasta föstudag.

Ný stjórn FL

Á aðalfundi FL voru Edda Ásgerður Skúladóttir og Jóhanna Kristjánsdóttir sjálfkjörnar í stjórn FL. Stjórn FL er því eftirfarandi: Eva Hauksdóttir, formaður FL, Edda Ásgerður Skúladóttir, Freyja Valsdóttir, Gerður Halla Gísladóttir, Hafrún Traustadóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir og Karen Gunnarsdóttir.

Á stjórnarfundi 12. maí mun stjórn kjósa varaformann, ritara og gjaldkera innan raða meðstjórnenda.

Félagsgjöld FL

Aðalfundur FL samþykkti að halda fagfélagsgjaldi óbreyttu (10.000kr) og að lækka félagsgjöld FL um 0,05% en þau verða því 1,15%. Breytingin mun taka gildi frá og með 1. júní 2026.

Uppfærð lög FL

Samkvæmt samþykktum á aðalfundi FL 2025 lagðist laganefnd FL í heildaryfirfærslu og lagði fram lagabreytingartillögur, auk þess sem stjórn FL lagði eina lagabreytingartillögu fram. Allar lagabreytingartillögur voru samþykktar. Uppfærð lög FL má finna á heimasíðu félagsins.

Fundargerð aðalfundar

Finna má fundargerð aðalfundar FL 2026 á innri vefsíðu heimasíðu FL, undir “Fundir”->”Aðalfundir”->”Aðalfundur 2026”. Samkvæmt uppfærðum lögum FL hefur félagsfólk tvær vikur til að skila athugasemdum varðandi fundargerð aðalfundarins (til og með 8. maí 2026). Ef athugasemdir berast verða þær birtar ásamt fundargerðinni á sama svæði. Eftir 8. maí telst fundargerðin samþykkt.

Merktur fatnaður frá 66°N með lógói FL

Meðfylgjandi má sjá þann merkta fatnað sem er í boði frá 66°N og tilboðsverð. Þær flíkur sem eru ermalausar munu bera lógó FL aftan á hálsinum og þær sem hafa ermar munu hafa lógó FL á hægri upphandlegg.

Senda skal pantanir á [email protected], taka þarf fram nafn vöru, vörunúmer og stærð. FL mun svo senda staðfestingapóst með greiðsluupplýsingum. Frestur til að senda inn pöntun er til og með 6. maí 2026.

Netföng félagsfólks FL

Stjórn FL hvetur félagsfólk FL til að passa upp á að rétt netfang sé skráð hjá félaginu. Stjórn FL mælir einnig með að það sé frekar persónulegt netfang en vinnunetfang.