Skip to main content
Fréttir

Alþjóðadagur lífeindafræðinga 15. apríl

By apríl 15, 2024No Comments

Í tilefni alþjóðlegs dags lífeindafræðinga birtist neðangreind grein í Morgunblaðinu í dag, 15. apríl, við vonumst til að hún vekji athygli á lífeindafræðingum, störfum þeirra og námi.

„Alþjóðlegur dagur lífeindafræðinga.

Kæri lesandi, í dag 15. apríl fögnum við alþjóðlegum degi lífeindafræðinga. Þema dagsins er “Guardians of Quality and Patient Safety: Biomedical Laboratory Scientists”. Lífeindafræðingar, ein af heilbrigðisstéttum landsins, sinna mikilvægu starfi er varða gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Margar af þeim rannsóknum sem einstaklingar þurfa að undirgangast á lífsleiðinni eru framkvæmdar af lífeindafræðingum. Það er því mikilvægt að lífeindafræðingar standi vörð um gæði rannsókna og öryggi sjúklinga, í þeim tilgangi að greining fáist á sjúkdómum, meðferð sé markviss og hægt sé að meta horfur sjúklinga. Síðustu áratugi hafa störf lífeindafræðinga þróast hratt og sjálfvirkni aukist mikið sem og fjöldi rannsókna, og eftirlitshlutverkið tengt gæðum stækkað að sama skapi.

Til að geta starfað sem lífeindafræðingur þarf starfsleyfi lífeindafræðings. Að baki slíks starfsleyfis liggur fjögurra til fimm ára háskólanám; þriggja ára grunnnám, B.Sc. nám í lífeindafræði (180 ECTS), og annað hvort árs diplómunám í lífeindafræði (60 ECTS), eða tveggja ára meistaranám, M.Sc. nám í lífeindafræði (120 ECTS). Diplómunámið telst sem fyrra ár meistaranámsins.

Í grunnnáminu læra nemar um ýmsar faggreinar innan lífeindafræðinnar, m.a. klíníska lífeindafræði, blóðmeinafræði, sýklafræði, vefjameinafræði og ónæmisfræði, auk gæðastjórnunar. Framhaldsnám í lífeindafræði, líkt og í öðrum háskólagreinum, kynnir rannsóknarvinnu og hvetur til vísindalegrar hugsunar. 

Skortur er á lífeindafræðingum á landinu, og því gott tækifæri fyrir alla þá sem hafa áhuga á rannsóknum og heilbrigði mannsins að skrá sig í lífeindafræðinám við Háskóla Íslands fyrir næsta haust. Umsóknartími til grunnnáms er 5. júní.

Höfundur er formaður Félags lífeindafræðinga, Eva Hauksdóttir.“

Einnig látum við fylgja hér myndbandskveðja frá formanni alþjóðasamtökum lífeindafræðinga, Marie Culliton. https://youtu.be/lfxdPZQCuxo

Privacy Preference Center

Afar Nauð

Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsetrið starfi eðlilega.

gdpr[allowed_cookies], gdpr[consent_types]

Markaðssetning

Notaðu vafrakökur til að nýta þér markaðssetningarreynslu þína til hins ýtrasta og lesa veraldarvefinn. Allar fyrirætlanir eru að mestu leyti viðeigandi fyrir hvern einstakling og eru jafnframt viðeigandi valkostir fyrir hvern ritstjóra vefseturs og aðra.

-

Synleg Frammistöðu

Vafrakökurnar eru notaðar til að fylgjast með notendasamskiptum og skynja þegar hugsanleg vandkvæði koma upp. Þær hjálpa okkur að bæta þjónustu okkar með því að láta í té greiningargögn um hvernig notendur nota þetta vefsetur.

-