Skip to main content
Fréttir

Þegar karlar stranda – og leiðin í land, fyrirlestur í dag 12. nóvember

By nóvember 12, 2020No Comments

Sirrý Arnardóttir gaf nýverið út bókina Þegar karlar stranda og leiðin í land. Þetta er viðtalsbók við karla um kulnun, örmögnun, streitu og alvarleg áföll en líka um vanvirkni ungra manna og ráð sérfræðinga. Í fyrirlestrinum fer Sirrý yfir helstu atriði bókarinnar og í lokin er boðið upp á umræður á Teams.

Kulnun, örmögnun, streita og alvarleg áföll hafa á undanförnum árum gert það að verkum að æ fleiri lenda í ógöngum og hrekjast jafnvel af vinnumarkaði. Og þetta á bæði við um karla og konur.

Smellið hér til að fara á viðburðinn á streymissíðu BHM

Fyrirlesturinn verður aðgengilegur í tvær vikur í kjölfarið á lokaðri fræðslusíðu fyrir félagsmenn, smellið hér til að komast á hana.