Skip to main content
Fagmál

Veiting sérfræðileyfa í lífeindafræði

By mars 27, 2007nóvember 15th, 2018No Comments

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Gunnari Kvaran hjá Heilbrigðis- tryggingamálaráðuneytinu þar sem undirrituð var reglugerð um veitingu sérfræðileyfa í lífeindafræði.
Á myndinni eru: Frá vinstri: Kristín Hafsteinsdóttir formaður Félags lífeindafræðinga, Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra og Martha Á. Hjálmarsdóttir sem er í forsvari fyrir námi lífeindafræðinga. Fyrir aftan þær standa Kristín Jónsdóttir og Helga Erlendsdóttir úr Félagi lífeindafræðinga

Fréttatilkynning
27.3. 2007

Reglugerð um sérfræðileyfi lífeindafræðinga undirrituð

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra undirritaði í dag reglugerð um veitingu sérfræðileyfa í lífeindafræði. Lífeindafræðingar sem uppfylla tilskilin skilyrði og fengið hafa leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra munu eftirleiðis hafa rétt til að starfa sem sérfræðingar í lífeindafræði. Um 400 lífeindafræðingar eru í dag á Íslandi. Fulltrúar Félags lífeindafræðinga sem voru viðstaddir er ráðherra undirritaði reglugerðina sögðu þetta merk tímamótum í sögu stéttarinnar, en Íslendingar eru ásamt Norðmönnum fyrstir þjóða á Norðurlöndum sem veita sérfræðileyfi í lífeindafræði.

Frá því að lögum um meinatækna var breytt í maí 2005 og heiti stéttarinnar breytt úr meinatækni í lífeindafræðing hefur verið í gangi vinna við reglugerð um sérfræðileyfi í lífeindafræði í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í samstarfi við Félag lífeindafræðinga.

Til að lífeindafræðingur geti átt rétt til að öðlast sérfræðileyfi í lífeindafræði þarf viðkomandi að hafa starfsleyfi sem lífeindafræðingur hér á landi. Hann skal hafa lokið meistaraprófi (MS gráðu) eða æðri gráðu frá viðurkenndum háskóla eða ígildi þeirrar menntunar. Þá þarf hann að hafa unnið sem lífeindafræðingur að lokum prófi sem jafngildir minnst tveimur árum í fullu starfi við þá sérgrein eða á því sviði sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til.

Í reglugerðinni er bráðabirgðaákvæði sem veitir ráðherra heimild í tvö ár til að veita lífeindafræðingum sérfræðileyfi sem ekki uppfylla almennu skilyrðin. Til að fá sérfræðileyfi samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu þurfa viðkomandi að hafa langa starfsreynslu við sérgreinina, hafa stundað nám í greininni við viðurkenndar stofnanir
og að hafa kynnt störf sín og niðurstöður í ritrýndum læknisfræðilegum tímaritum eða með öðrum viðurkenndum hætti.

Lifeindafrae_ingar_serfraedileyfi_004b

Myndatexti:

Frá undirritun reglugerðarinnar um sérfræðileyfi í lífeindafræði.
Frá vinstri: Kristín Hafsteinsdóttir formaður Félags lífeindafræðinga, Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra og Martha Á. Hjálmarsdóttir sem er í forsvari fyrir námi lífeindafræðinga. Fyrir aftan þær standa Kristín Jónsdóttir og Helga Erlendsdóttir úr Félagi lífeindafræðinga.