Skip to main content
Fréttir

Haustfundur FL 2023

By nóvember 16, 2023No Comments

Vegna aðstæðna í húsnæðismálum FL og BHM gat ekki orðið af Haustfundi á áætluðum tíma. Nú hefur opnast gluggi til að halda fundinn þann 30. nóvember 2023. Fundurinn er haldinn á 4. hæð í Borgartúni 6, 105 Reykjavík. Fundurinn verður í sal og á zoom fyrir þá sem eiga ekki heimangengt eða búa utan höfuðborgarsvæðisins.

 

 Haustfundur Félags lífeindafræðinga

Fimmtudaginn 30. nóvember 2023 kl. 16:30 á 4. hæð að Borgartúni 6, 105 Reykjavík og á zoom

Léttar veitingar og spjall að loknum fundi

Dagskrá fundar:

  1. Setning
  2. Kynning á stöðu félagsfólks FL í samanburði við önnur félög innan BHM og hvernig hefur breytingin verið síðustu árin
  3. Kynning á kröfugerð FL gagnvart ríki í komandi kjarasamningum og helstu áhersluatriði
  4. Förum við í samflot við önnur félög innan BHM eða utan?
    • Umræður og spurningar
  5. Kjör samninganefndar FL
  6. Önnur mál
  7. Léttar veitingar og spjall

Skýring við 5. lið:
Formaður félagsins á fast sæti í samninganefnd félagsins, önnur sæti er kosið um á haustfundi. Eftirfarandi hafa nú þegar gefið kost á sér til starfa í samnninganefnd:
Freyja Valsdóttir, Sýkla- og veirufræðideild LSH
Heiða Sigurðardóttir, Tilraunastöð Háskólans að Keldum
Inga Stella Pétursdóttir, SAK

Til vara,
Arna Auður Antonsdóttir, Rannsóknarkjarna LSH

Í samninganefnd þurfa að vera 3-7 fulltrúar. Best er ef fulltrúar í samninganefnd koma frá mismunandi stofnunum og því hvetjum við þá sem hafa brennandi áhuga á kjaramálum að bjóða sig fram auk þess hvetjum við verðandi formannsefni til að gefa kost á sér í samninganefnd. Framboð sendist á netfangið [email protected] eða [email protected]

Krækja á zoom fund verður á innri vef félagsfólks undir Haustfundur 2023

Privacy Preference Center

Afar Nauð

Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsetrið starfi eðlilega.

gdpr[allowed_cookies], gdpr[consent_types]

Markaðssetning

Notaðu vafrakökur til að nýta þér markaðssetningarreynslu þína til hins ýtrasta og lesa veraldarvefinn. Allar fyrirætlanir eru að mestu leyti viðeigandi fyrir hvern einstakling og eru jafnframt viðeigandi valkostir fyrir hvern ritstjóra vefseturs og aðra.

-

Synleg Frammistöðu

Vafrakökurnar eru notaðar til að fylgjast með notendasamskiptum og skynja þegar hugsanleg vandkvæði koma upp. Þær hjálpa okkur að bæta þjónustu okkar með því að láta í té greiningargögn um hvernig notendur nota þetta vefsetur.

-