Haustfundur Félags lífeindafræðinga 2011 var haldinn 28. október sl. Fundurinn var vel sóttur og góð stemming.
Fundarstjóri var Brynja Guðmundsdóttir og ritari Sigrún Reynisdóttir
Gyða Hrönn Einarsdóttir, formaður samninganefndar, sagði frá stöðu kjaramála
Í samninganefnd fyrir 2011-2012 voru kjörnar: Gyða Hrönn Einarsdóttir, Brynja Guðmundsdóttir, Gunnhildur Ingólfsdóttir, Inga Stella Pétursdóttir, Erla Soffía Björnsdóttir og Arna Auður Antonsdóttir. Til vara voru þær Helga Dóra Jóhannsdóttir og Kristín Einarsdóttir kjörnar.
Síðan flutti Gyða Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur, erindi sem hún nefnir: „Samskipti á vinnustað – hvernig mæti ég til leiks.“