
Á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks minnumst við mikilvægi sameiginlegrar baráttu fyrir bættum kjörum og höldum baráttunni áfram, því henni er ekki lokið! Félag lífeindafræðinga hvetur allt sitt félagsfólk til að taka virkan þátt í deginum — víðs vegar um landið verða haldnir baráttufundir og kröfugöngur.
Dagskrá 1. maí í Reykjavík
Morguninn hefst í Bíó Paradís:
-
Kl. 11:00 opnar Bíó Paradís fyrir félagsfólk aðildarfélaga BHM.
-
Kl. 11:30 verða hamborgarar í boði, tækifæri gefst til að spjalla, mynda tengsl og hrista saman hópinn.
-
Um kl:13:00 göngum við saman upp á Skólavörðuholt.
Kröfuganga:
-
Kl. 13:00: Göngufólk safnast saman á Skólavörðuholti.
-
Kl. 13:30: Gangan hefst undir taktfastri leiðsögn Lúðrasveitar verkalýðsins og Lúðrasveitar Svansins.
-
Leiðin liggur niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi.
Baráttufundur á Ingólfstorgi:
-
Kl. 14:00 hefst fundurinn.
-
Fundarstýrur eru Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, sviðshöfundur og listakona, ásamt Margréti Pétursdóttur sem mun sjá um túlkun á táknmáli.
-
Fundurinn verður jafnframt textatúlkaður á ensku.
Ræðumenn:
-
Karla Esperanza Barralanga Ocón, starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu.
-
Jóhanna Bárðardóttir, rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.
Tónlistaratriði:
-
Mammaðín og Una Torfa flytja tónlist.
-
Fundinum lýkur með sameiginlegum samsöng.
Að þessu sinni er dagskrá 1. maí sérstaklega tileinkuð Kvennaári 2025, og verður sú áhersla áberandi í baráttufundum um land allt.