Fræðslufundur Félags lífeindafræðinga í samstafi við Medor verður haldinn föstudaginn 26. janúar 2024 kl. 12 – 17 í Hörgatúni 2 Garðabæ
Óskað er eftir fyrirlesurum.
FL óskar eftir fyrirlesurum, bæði fagfólki og nemum, á fræðsludegi lífeindafræðinga.
Hefur þú unnið að rannsókn eða ertu með áhugavert efni sem þú villt kynna?
Erindið má vera að hámarki 40 mínútur (10 – 20 eða 30 mín) og fjalla um eitthvað fræðandi sem snýr að fjölbreyttum störfum lífeindafræðinga.
Þau sem hafa áhuga sendi upplýsingar um sig og verkefnið sitt í tölvupósti á Helgu Sigrúnu Sigurjónsdóttur skipuleggjanda viðburðar [email protected] og á Félag lífeindafræðinga á [email protected]
Veitingar fyrir fræðslufundinn eru í boði Medor