Haustfundurinn var haldinn mánudaginn 13. okt. 2014 og tókst með ágætum. Góð mæting var og góð stemming á fundinum.
Við fengum Þorlák Karlsson frá fyrirtækinu Maskína til að kynna niðurstöður kjarakönnunar 2014 og þá sérstaklega miðað við okkar félag.
Arna Antonsdóttir, Gunnhildur Ingólfsdóttir og Brynja Guðmundsdóttir ganga allar úrsamninganefnd og var þeim þökkuð góð störf til margra ára í nefndinni.
Lagður var fram listi yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til setu í samninganefndinni árið framundan, það eru:
Gyða Hrönn Einarsdóttir, formaður félagsins og formaður samninganefndar
Erla Soffía Björnsdóttir
Helga Dóra Jóhannsdóttir
Inga Stella Pétursdóttir
Karen Herjólfsdóttir
Kristín Einarsdóttir
Sigríður Kristín Rúnarsdóttir
Ekkert mótframboð kom fram og voru þessir fulltrúar samþykktir með lófataki. Fundarstjóri var Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir.
Að loknum fundarstörfum var boðið upp á veitingar og spjall.