Skip to main content
Fréttir

Haustfundur Félags lífeindafræðinga

By september 19, 2024No Comments

Félag lífeindafræðinga boðar til haustfundar þann 4. október 2024, kl.16:30 að Borgartúni 27, Reykjavík.

Húsið opnar kl.16.
​
Einnig verður boðið upp á rafræna þátttöku, slóð á fund verður send út daginn fyrir fund.​

Dagskrá fundar:​
  1. Setning fundar.
    ​
  2. Upplýsingar frá samninganefnd FL. Eva Hauksdóttir fer yfir yfirstandandi samningaviðræður við SNR.
    ​
  3. Kjör samninganefndar FL.​
    Hér með er óskað eftir framboðum eða tilnefningum í samninganefnd FL fyrir komandi haustfund. Í samninganefnd þurfa að vera 3-7 fulltrúar. Best er ef fulltrúar í samninganefnd koma frá mismunandi stofnunum og því hvetjum við þá sem hafa áhuga á kjaramálum að bjóða sig fram. Framboð sendist á netfangið [email protected].
    ​
  4. Kynning á og kosning í tímabundna nefnd um skilgreiningu á störfum lífeindafræðinga.​
    Hér með er óskað eftir framboðum eða tilnefningu í nefnd sem ætlað er að rýna í skilgreiningu á störfum lífeindafræðinga. Í nefndinni þurfa að vera að lágmarki fimm fulltrúar. Best er ef fulltrúarnir komi frá mismunandi sérsviðum lífeindafræðinnar og því hvetjum við alla að bjóða sig fram. Framboð sendist á netfangið [email protected].
    ​
  5. Kynning:​
    1. Sjóðir FL og BHM​
    2. Nýjungar á heimasíðu​
    3. Nordic guest membership​
      6. Önnur mál:​
                 1. Þakkir til fyrrum stjórnarmeðlima ​
                 2. Kynning á næstu IFBLS ráðstefnu ​
                 Ef félagsfólk FL býr yfir einhverjum málum sem það vill taka upp undir önnur mál þá er hægt að senda póst um það á [email protected] eða biðja um orðið þegar það verður laust undir þessum lið.​

Að loknum fundi býður FL upp á pizzur, drykki og pubquiz.​

Við hvetjum allt félagsfólk okkar til að mæta og taka virkan þátt í starfi félagsins​

Skráning á fundinn fer fram á netinu en nánari upplýsingar um skráningu voru sendar út í tölvupósti, ásamt fundarboði.​