Þar sem frestur til að skila ágripum á norðurlandaráðstefnu lífeindafræðinga í Finnlandi í haust hefur verið framlengdur til 16. júlí 2017 hefur verið ákveðið að framlengja einnig umsóknarfrest um nemastyrk fræðslusjóðs, en um tilraunaverkefni er að ræða og yrði þetta í fyrsta sinn sem félagið styrkir nema til að taka þátt í nemahluta ráðstefnu. Umsóknarfresturinn verður til og með 31.ágúst 2017. Hér neðar er að finna upprunalegu auglýsingu Vísinda- og fræðslusjóðs um styrkinn, með breyttum umsóknarfresti:
Stjórn Vísinda- og fræðslusjóðs FL hefur ákveðið að bjóða tveimur nemendum í lífeindafræði eða nýútskrifuðum lífeindafræðingum styrk til að sækja stúdentahluta norðurlandaráðstefnu NML í Helsinki dagana 5-7 október 2017.
Heildarupphæð styrkveitingar verður: 140.000 ISK hvor styrkur.
Sjóðsstjórn setur ákveðin skilyrði fyrir styrkveitingunni, þau eru eftirfarandi:
- Styrkþegi þarf að hafa nemaaðild að Félagi lífeindafræðinga
- Styrkþegi þarf að hafa samþykkt ágrip á ráðstefnuna
- Ef umsækjendur verða fleiri en tveir mun úthlutun stykja ráðast af eftirfarandi:
- Samþykkt ágrip sem verður einnig flutt sem munnlegt erindi raðast ofar en ágrip sem eingöngu er birt sem veggspjald
- Nemandi sem er lengra komin í námi gengur fyrir nema sem er styttra komin í námi.
Sjá nánari upplýsingar um Student Forum: http://www.nml2017.fi/studentforum.html
Umsóknir um styrkinn skulu sendar á umsóknareyðublaði Fræðslusjóðs FL sem finna má á heimasíðu félagsins til [email protected] fyrir 31.ágúst 2017. Í viðbótarupplýsingum þarf að koma fram hversu langt nemandi er kominn í námi sínu, heiti ágrips, rökstuðningur fyrir því af hverju viðkmandi nemi ætti að hljóta styrkinn og hvernig hann mum eftir þingið nýta sér það sem hann hefur lært á þinginu.