Aðalfundur Félags lífeindafræðinga
Verður haldinn þriðjudaginn 19. mars kl. 16:30
Staðsetning fundar: Borgartún 27, 105 Reykjavík, 2. hæð. Einnig verður boðið upp á rafræna þátttöku, slóð á fund verður send út daginn fyrir fund.
Skráning á fundinn verður send út u.þ.b. viku fyrir aðalfund.
Nýr formaður FL er Eva Hauksdóttir. Aðeins eitt framboð til formanns Félags lífeindafræðinga kom í febrúar og er hún því sjálfkjörin og mun taka við störfum formanns að aðalfundi loknum.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins
- Lagabreytingar félagsins, engar tillögur bárust
- Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda
- Kosning stjórnar, nefnda og skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
Boðið verður upp á veitingar.
Við hvetjum allt félagsfólk okkar til að mæta og taka virkan þátt starfi félagsins.