
Haustfundur Félags lífeindafræðinga verður haldinn föstudaginn 9. október í Borgartúni 27, 2. hæð, kl.17:00 – húsið opnar kl.16:30.
Fundurinn verður einnig rafrænn á Teams og verður hlekkur á fundinn sendur út samdægurs.
Dagskrá fundar
- Setning fundar
- Þakkir til fyrrum stjórnarmeðlima
- Kjör samninganefndar Félags lífeindafræðinga
Í 12. gr. laga Félags lífeindafræðinga segir:
„Í hverri samninganefnd skulu eiga sæti formaður FL
og tveir til sex fulltrúar félagsfólks.“
Eftirfarandi félagsmenn hafa þegar gefið kost á sér til áframhaldandi starfa í samninganefnd:
Arna Óttarsdóttir, Freyja Valsdóttir, Gerður Halla Gísladóttir og Inga Stella Pétursdóttir.
Hér með er óskað eftir framboðum eða tilnefningum í samninganefnd FL. Þau sem hafa áhuga á kjaramálum eru hvött til að bjóða sig fram. Framboð skulu send á [email protected].
- Kynning
- Uppfærsla á heimasíðu Félags lífeindafræðinga
- Sjóðir FL og BHM
- IFBLS2026
- Næstu viðburðir
- Önnur mál
Ef félagsfólk FL hefur mál sem það vill taka upp undir liðnum önnur mál er hægt að senda erindi á [email protected] eða óska eftir að fá orðið þegar komið er að þeim dagskrárlið.
Eftir fundinn býður Félag lífeindafræðinga upp á veitingar og pubquiz.
Matur fyrir félagsfólk utan fundarstaðar: Félagið býður lífeindafræðingum á landsbyggðinni sem vilja koma saman og fylgjast með haustfundinum að panta sér mat, og sama gildir um félagsfólk á höfuðborgarsvæðinu sem er við störf á fundartíma. Hafa skal samband við Jóhönnu Kristjánsdóttur, gjaldkera félagsins, í netfanginu [email protected].