Skip to main content
Fréttir

Eva Hauksdóttir kjörin President Elect hjá IFBLS

By september 27, 2026No Comments

Á nýafstaðinni ráðstefnu Alþjóðasamtaka lífeindafræðinga (IFBLS), sem haldin var 23.–27. september, var kosin ný stjórn samtakanna til tveggja ára. Ellefu einstaklingar voru í framboði um sjö stjórnarsæti. Af þeim gaf einn kost á sér til embættis forseta (e. President) og tveir til embættis President Elect. Frambjóðendurnir þurftu þó fyrst að ná kjöri í stjórn áður en kosið var í embættin.

Eftirtalin voru kjörin í stjórn IFBLS, í stafrófsröð:

  • Eva Hauksdóttir – Ísland
  • Fernando Mendez – Portúgal
  • Giseon Song – Suður-Kórea
  • Hassan Aziz – Bandaríkin
  • Joanna Andrew – Bretland
  • Khalil Atig – Túnis
  • Robyn Wells – Ástralía

Gabriella Lillsunde Larsson fráfarandi forseti IFBLS tekur embætti Past President. Hassan Aziz var sjálfkjörinn forseti IFBLS en kjósa þurfti á milli Evu Hauksdóttur og Fernando Mendez í embætti President Elect. Eva hlaut 29 atkvæði en Fernando 19.

Eva Hauksdóttir, formaður Félags lífeindafræðinga, hefur því verið kjörin President Elect hjá IFBLS.

Hvað felst í embætti President Elect?

President Elect starfar sem varaforseti IFBLS. Á kjörtímabilinu fær viðkomandi jafnframt góðan undirbúning fyrir starf forseta samtakanna, kjósi viðkomandi að bjóða sig fram til þess embættis að kjörtímabilinu loknu.

(Mynd af nýrri stjórn IFBLS var tekin af Janie Hames)