Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til rafræns hádegisfundar 8. mars kl. 12–13. Yfirskrift fundarins er „Konur í kafi – kynjajafnrétti á tímum heimsfaraldurs“.
Fundur verður túlkaður á ensku.
Slóð á viðburðinn: https://us02web.zoom.us/j/85277321283
Dagskrá
- „Bakslag eða afhúpun: Heimilislíf og jafnrétti í fyrstu bylgju Covid frá sjónarhóli mæðra“
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við HA, og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við menntavísindasvið HÍ. - „Framlínukonur á tímum Covid“
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. - „Spritta, tengjast, vinna“
Donata Honkowicz-Bukowska, grunnskólakennari og kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál. - Umræður
Fundarstjóri er Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Viðburðurinn verður tekinn upp og aðgengilegur fljótlega eftir fundinn.