Skip to main content
Fréttir

Kjarasamningsviðræðum vísað til ríkissáttasemjara

By nóvember 19, 2024No Comments

Fimmtudaginn 14. nóvember ákvað samninganefnd Félags lífeindafræðinga að vísa kjarasamningaviðræðum Félags lífeindafræðinga við ríkið til ríkissáttasemjara. Það var gert vegna þess að viðræðurnar höfðu siglt í strand, þó ekki að hálfu samninganefndar FL.

Samninganefnd FL mun halda rafrænan fund 28. nóvember 2024 með félagsfólki sínu sem starfar hjá ríkinu og hefur fundarboð verið sent út nú þegar. Ef þú hefur ekki fengið fundarboð en telur þig eiga rétt á fundarboði, vinsamlegast hafðu samband við [email protected].