Fyrir launagreiðendur
Félagsgjöld til Félags lífeindafræðinga sem dregin eru mánaðarlega af launum félagsmanna og vinnuveitandi gerir skil á eru 1,2% af heildarlaunum. Þetta gildir fyrir alla félagsmenn jafnt – hvort sem er á almennum eða opinberum vinnumarkaði.
Númer FL er: 618
Orlofs- og desemberuppbót
Um iðgjaldaskil fyrir launagreiðendur og verktaka
Framlag vinnuveitanda í sjóði félagsmanna FL
í Orlofssjóð BHM 0.25% af heildarlaunum
í Starfsmenntunarsjóð BHM 0.22% af heildarlaunum
í Vísindasjóð FL 1,5% af heildarlaunum
í Styrktarsjóð 0,75% af heildarlaunum – opinberi markaðurinn
í Sjúkrasjóð BHM 1% af heildalaunum – almenni markaðurinn
í Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,70% af heildarlaunum – valkvætt fyrir þá sem ekki hafa samið um aðild
Sami atvinnurekandi greiðir ekki í bæði Styrktarsjóð og Sjúkrasjóð. Félagsmenn á almennum markaði greiða í Sjúkrasjóð BHM, en
Styrktarsjóður er fyrir félagsmenn sem vinna hjá ríkisfyrirtækjum af einhverju tagi.
Allar greiðslur vegna félagsgjalda og iðgjalda í vísindasjóð, orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, fjölskyldu- og styrktarsjóð og sjúkrasjóð eiga að greiðast inn á bankareikning skv. neðangreindum upplýsingum:
Bankaupplýsingar: 0515-26-550000
kt. 630387-2569.
Greiða má í einni upphæð en skilagreinar með fullnaðarupplýsingum (nákvæma sundurliðun gjalda) um viðkomandi launþega þurfa jafnframt að berast til Bókunar- og innheimtumiðstöðvar Bandalags háskólamanna.
Senda má rafrænt með XML í gegnum síðuna www.skilagrein.is eða SAL færslu með tölvupósti á netfangið [email protected] hinsvegar. Ekki þarf að setja inn lykilorð þó beðið sé um það í sumum kerfum.
Síða fyrir launagreiðendur á vef BHM
Heimilisfang fyrir skilagreinar sem berast í pósti
Bandalag háskólamanna
Borgartúni 6, v/BIB
105 Reykjavík
Netfang fyrir skilagreinar: [email protected]
Starfsendurhæfingarsjóður
Framlag í Starfsendurhæfingarsjóð er 0,1% og fylgir lífeyrissjóði.