
Aðalfundur Félag lífeindafræðinga verður haldinn föstudaginn 17. apríl 2026.
Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 27, 3. hæð, auk þess sem hann verður rafrænn á Teams (hlekkur verður sendur út daginn fyrir aðalfundinn).
Húsið opnar kl.16:30 og fundurinn hefst kl.17:00, en fyrir opna húsið er ráðstefnudagur FL sem við hvetjum öll að mæta á. Að loknum fundi verður boðið upp á veitingar.
Dagskrá aðalfundar FL verður eftirfarandi:
- Skýrsla félagsstjórnar
- Reikningar félagsins
- Lagabreytingar
- Fjárhagsáætlun, ákvörðun um félagsgjald og annarra gjalda ef um það er að ræða
- Tilkynningar um breytingar á reglum sjóða FL og staðfesting þeirra
- Kosning meðstjórnenda í stjórn FL
- Kosning fulltrúa í nefndir og sjóði, og skoðunarfólk reikninga
- Önnur mál
- Ályktanir
Á innri vef heimasíðunnar má núna finna
- Auglýsingu fyrir aðalfundinn sem við hvetjum félagsfólk til að prenta út og setja upp á vinnustað sínum.
- Auglýsingu um laus sæti í stjórnum og nefndum. Stjórn FL hvetur félagsfólk FL til að bjóða sig fram í laus sæti stjórnar, sjóða og nefnda FL. Þeir einstaklingar sem eru þegar skráðir frambjóðendur eru að bjóða sig fram til áframhaldandi setu.
- Ef til kosninga kemur, þá verð þær rafrænar. Vinsamlegast hafið rafræn skilríki meðferðis.
- Lagabreytingartillögur. Lagabreytingartillögur frá laganefnd FL og stjórn FL.
Önnur gögn fyrir aðalfundinn verða sett inn á innri vefinn á næstu dögum: skýrsla stjórnar, ársreikningar, fjárhagsáætlun og ályktanir. Tilkynning verður send á félagsfólk þegar öll gögn eru til staðar á innri vef félagsins.
FL sendi eftirfarandi tilkynningu frá Gerði Höllu, varaformanni FL, 4. mars til alls félagsfólks FL vegna formannskjörs FL:
„Framboðsfrestur til formannskjörs Félags lífeindafræðinga rann út 1. mars síðastliðinn. Eitt framboð barst frá sitjandi formanni, Evu Hauksdóttur, sem telst því sjálfkjörin til næstu tveggja ára.“
Við viljum biðja ykkur sem sjáið ykkur fært að koma á aðalfundinn að skrá ykkur hér, Aðalfundur Félags lífeindafræðinga 2026 – Fill in form, en það er eingöngu til að hjálpa stjórn FL áætla fjölda aðalfundargesta.
Einnig viljum við taka fram að félagið býður þeim lífeindafræðingum úti á landi, sem vilja koma saman og fylgjast með aðalfundinum, upp á að panta sér mat og einnig þeim á höfuðborgarsvæðinu sem eru að vinna. Hafa skal samband við Sigríði, gjaldkera FL, [email protected].
Í lokin viljum við minna ykkur á að þið getið sent póst á [email protected] ef þið viljið taka upp einhver mál undir “Önnur mál”. Einnig verður hægt að bera upp málefni þegar að orðið er laust undir “Önnur mál”.
Sjáumst 17. apríl!